Yfir helgina hefur Bjartsýnishátíðin Sólarpönk staðið yfir á Akureyri. Sólarpönk er hugmyndafræði og hreyfing sem snýst um að skapa og ímynda sér heim þar sem mannfólk lifir í sátt og ræktar tengsl við náttúruna, samfélagið og sig sjálft.
Markmið hátíðarinnar er að kynna Sólarpönk hugmyndafræðina, efla bjartsýni, gleði og von í samfélaginu í gegnum samtal, sköpun og samveru ásamt því að vera mótvægi við neikvæða umræðu, vaxandi kvíða og einmanaleika. Fyrirlesarar á Sólarpönki koma úr ólíkum áttum – menningu og listum, skapandi greinum, viðskiptalífinu og umhverfis- og grasrótarhreyfingum.
Sunnudaginn 15. mars klukkan 12.00 mun Amnesty International halda vinnustofu um tilfinningar og aktívisma í Deiglunni í umsjón Eyglóar Árnadóttur fræðslustýru, Evu Einarsdóttur formanns Íslandsdeildar og Stefaníu Sigurdísar Jóhönnudóttur, samfélagsmiðlafulltrúa Íslandsdeildar Amnesty.
Þar verða teknar fyrir ýmsar spurningar sem snúa að aktívisma í samtímanum. Von er nauðsynleg allri mannréttindabaráttu, en hvernig höldum við lífi í voninni þegar hörmungar fréttir dynja á úr öllum áttum? Samkennd er grundvöllur mannréttindabaráttu, en er hægt að auka samkennd fólks og fá þannig fleiri með í baráttuna? Aðgerðastarf er undirstaða mannréttindabaráttu, en hvað gerist þegar orkan er uppurin? Eru litlar aðgerðir líka mikilvægar? Er pláss fyrir jákvæðni í mannréttindabaráttu – eða á mannréttindabarátta kannski ekki möguleika án jákvæðni?
Kaffið.is fékk innsýn í mannréttindafræðslu Amnesty og þjálfun sem eykur samkennd.
Hvert er markmið mannréttindafræðslu Amnesty International?
„Fræðslu Amnesty International er ætlað að virkja, valdefla og hvetja fólk til aðgerða í þágu mannréttinda. Fræðslan snýst ekki aðeins um aukna þekkingu heldur einnig um tilfinningar nemandans, þar sem viðfangsefnið er raunverulegt líf og þjáningar fólks. Tilfinningafærni til samkenndar er því forsenda þess að nemandi nái að meðtaka og nýta sér slíka fræðslu.“
Hvað felst í samkennd og hvers vegna er þessi tilfinningafærni svona mikilvæg í mannréttindafræðslu?
„Samkennd vísar til þess að geta sett sig í spor annarra, að þjást vegna þjáninga annars fólks og hafa löngun til að linna þeim. Samkennd opnar hjartað fyrir upplifun annarra og knýr okkur til góðvildar í garð náungans. Þessi mikilvæga tilfinningafærni hjálpar okkur að sjá hlutina frá sjónarhorni annars fólks og skilja reynslu þess betur.“
Hvað segja rannsóknir um stöðu samkenndar hjá ungu fólki á Íslandi?
„Vísbendingar eru um að samkennd fari þverrandi. PISA-könnun frá 2022 sýndi til dæmis að íslensk ungmenni komu illa út í samkennd og samvinnu, miðað við samanburðarlöndin. Þá má spyrja sig hvort mannréttindafræðsla geti náð markmiðum sínum ef þessa mikilvægu tilfinningafærni skortir hjá áheyrandanum? Eða hvort fræðslan þurfi þá fyrst og fremst að þjálfa færni til samkenndar?“
Hvernig bregst Amnesty við þessari áskorun í gegnum fræðslu?
„Það er ný áhersla í kennslunálgun og námsefni Íslandsdeildar Amnesty International, sem styðst við sálfræðikenningar um markvissa þjálfun samkenndar. Að kafa ofan í sannar frásagnir þolenda mannréttindabrota er áhrifamesta leiðin í að byggja upp samkennd. Fjölmargir þættir draga mannkynið í dilka með tilheyrandi valdamisvægi, fordómum og misrétti, en að vinna með það sem við eigum öll sameiginlegt er lykilatriði í að virkja samkennd. Tilfinningin fyrir mannréttindabrotum verður dýpri ef nemandinn býr fyrst til persónuleg tengsl við þolandann og tengir við sinn eigin reynsluheim. Því leggur fræðslan áhersla á sameiginlega mennsku okkar allra og persónulega þætti sem hinn almenni nemandi á Íslandi gæti hæglega átt sameiginlegt með þolendum í herferðinni.“
Hvernig verður fræðsla að raunverulegum aðgerðum?
„Það er mikilvægt að fræðslunni ljúki með raunverulegu tækifæri fyrir nemendur til að grípa til aðgerða í mannréttindastarfi. Von og gerendahæfni eru gagnlegar tilfinningar til að skilja eftir hjá nemandanum, eftir nístandi upplýsingar um grimmd og misrétti. Markmið allrar mannréttindafræðslu er að nemandinn gangi burt með þrá í hjarta eftir betri heimi en einnig með einhver tól til að vinna að samfélagslegum breytingum. Mannréttindaherferðir Amnesty virkja samtakamátt fólks og gefa raunveruleg tækifæri til að láta gott af sér leiða – jafnvel bjarga mannslífi.“


COMMENTS