Amtsbókasafnið fær styrk fyrir Mánuð móðurmáls

Amtsbókasafnið á Akureyri hefur hlotið 400 þúsund króna styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir verkefnið Mánuður móðurmáls.
Alþjóðadagur móðurmálsins er haldinn árlega 21. febrúar. Á Amtsbókasafninu á Akureyri verður haldið upp á daginn allan febrúarmánuð með ýmsum viðburðum og skemmtilegri dagskrá.
Styrkir úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2026 voru veittir á viðburðinum Lykill að samfélaginu sem innflytjendaráð stóð fyrir í gærmorgun. Alls hlutu 26 verkefni styrk.
„Verkefnin sem við fögnum í dag hjálpa okkur að sjá hvert annað skýrar. Þau leiða fólk saman og skapa tækifæri til að læra og taka þátt. Þau sýna að við getum eflt íslenskuna og um leið virt þau tungumál og þá reynslu sem fólk hefur með sér,“ sagði Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs, á viðburðinum.

Tengdar greinar
Uppfært: 12. nóvember 2026










