Aron Birkir framlengir hjá Þór
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Markvörðurinn Aron Birkir Stefánsson hefur undirritað nýjan samning við knattspyrnudeild Þórs á Akureyri. Samningurinn gildir út árið 2028.
Þetta var tilkynnt á lokahófi Þórs í Hamri á föstudaginn þar sem Aron var jafnframt valinn leikmaður ársins og valinn leikmaður leikmannanna.
Aron Birkir hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin ár en þessi 27 ára gamli markvörður hefur leikið 288 leiki fyrir meistaraflokk Þórs og skorað í þeim eitt mark en Aron á einnig 11 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Tengdar greinar
Uppfært: 15. nóvember 2026










