MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Aron Birkir leikmaður ársins og Einar Freyr besti ungi leikmaðurinn

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
Kaffidh-Template-83
kaffid.is

Aron Birkir Stefánsson var valinn besti leikmaður ársins 2026 hjá Þór á lokahófi meistaraflokks karla sem fram fór í Hamri í gær. Þar að auki var hann valinn leikmaður leikmannanna. Á lokahófinu voru einnig veitt verðlaun fyrir besta unga leikmanninn, en þau hlaut Einar Freyr Halldórsson. Greint var frá þessu á heimasíðu Þórs í dag.

Á hófinu var einnig tilkynnt um að Aron Birkir hefði undirritað nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Þórs. Aron Birkir var fyrirliði Þórs á árinu líkt og undanfarin ár, en hann hefur spilað 288 leiki fyrir meistaraflokk Þórs. Liðið endaði í 10. sæti Bestu deildarinnar í ár og Aron Birkir var sá markvörður í deildinni sem varði flest mörk, en deilir þeim titli að vísu með markverði Víkings. Aron Birkir var einnig markahæsti markvörður deildarinnar sökum glæsilegs marks sem hann skoraði í 3-3 jafntefli gegn KR.

Einar Freyr Halldórsson var valinn besti ungi leikmaður Þórs 2026. Einar er 18 ára gamall og lék lykilhlutverk í liði Þórs á tímabilinu. Hann spilaði 25 leiki í Bestu deildinni og átti þar tvö mörk og fjórar stoðsendingar.

Tengdar greinar

Uppfært: 14. nóvember 2026