MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Aron Einar jafnaði met Birkis

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
aron einar
kaffid.is

Aron Einar Gunnarsson jafnaði landsleikjamet Birkis Bjarnasonar þegar hann kom inn á sem varamaður í leik Íslands og Lúxemborgar. Fyrir kvöldið hafði Aron spilað 112 leiki og lék þarna sinn 113. landsleik. fotbolti.net greindi frá.

Skiptingin fór fram eftir að Mikael Egill Ellertsson skoraði þriðja mark Íslands og nýtti Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari þá tækifærið til að setja Aron á völlinn.

Aron hafði þegar gefið út að þetta yrði hans síðasta landsliðsverkefni og var hann heiðraður sérstaklega fyrir leikinn. Hann á að baki langan feril með íslenska liðinu og leiddi það sem fyrirliði á bæði Evrópumótinu og heimsmeistaramótinu.

Tengdar greinar

Uppfært: 16. nóvember 2026