Auglýst eftir ökumanni sem ók á stúlku á rafmagnshjóli
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur auglýst eftir ökumanni eða vitnum að atviki sem átti sér stað á Akureyri 5. nóvember síðastliðinn. Ekið var á stúlki sem var á rafmagnshjóli á Byggðavegi við Vanabyggð.
Í færslu lögreglunnar á Facebook segir að atvikið hafi orðið um klukkan tvö síðdegis og að ökumaðurinn hafi verið á hvítum bíl.
Ökumaðurinn sem og möguleg vitni eru beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444-4800 eða senda tölvupóst á nordurland.eystra@logreglan.is
Tengdar greinar
Uppfært: 24. nóvember 2026





