MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Vilhelm Þorsteinsson EA losnaði frá bryggju í óveðri gærkvöldsins

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
905048527_2353074888565104_3403482293676035969_n
Ljósmynd: Lögreglan á Norðurlandi eystra· kaffid.is

Vilhelm Þorsteinsson EA 11, uppsjávarskip Samherja, losnaði frá bryggju við höfnina í Krossanesi í gærkvöldi. Bryggjupollar höfðu brotnað í óveðrinu og hékk skipið á aðeins einni taug þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang.

Lóðsinn var ræstur út ásamt björgunarsveitinni Súlum. Mikið hafrót var í höfninni en með aðstoð lóðsins tókst að koma áhöfn um borð og setja vélar þess í gang. Lóðsinn aðstoðaði síðan við að ná skipinu úr höfninni og sigldi það síðan að Oddeyrarbryggju þar sem því var lagt. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Skipið er, að því er virðist, óskemmt samkvæmt tilkynningu frá Samherja í morgun, en verður skoðað nánar við fyrsta tækifæri. Eitthvert tjón varð þó á hafnarmannvirkjum í Krossanesi samkvæmt lögreglu.

Heljarinnar norðan stórhríð gekk yfir landið í gær og í nótt og stóðu viðbragðsaðilar í fleiri verkefnum í gærkvöldi. Björgunarsveitir voru meðal annars kallaðar út vegna foktjóns bæði á Ólafsfirði og Dalvík.

Tengdar greinar

Uppfært: 14. nóvember 2026