Söngkeppni Menntaskólans á Akureyri fór fram í gærkvöldi þar sem 15 atriði voru skráð til keppni. Í dómnefnd sátu Hólmfríður Hafliðadóttir, Níels Thibaud Girerd og Tinna Ólafsdóttir. Bæring Nói Dagsson stóð uppi sem sigurvegari með flutningi sínum laginu Teenage Dirtbag við íslenskan texta sem hann samdi ásamt vinum sínum. Bæring mun því keppa fyrir hönd MA í Söngkeppni framhaldsskólanna.
„Vinsælasta atriðið var kosið af áhorfendum og fékk líflegur flutningur Bergrósar Ástu Guðmundsdóttur og Hafrúnar Lindu Guðmundsdóttur á norska smell þeirra Marcusar og Martinusar, Elektrisk, flest atkvæði. Dómnefndin tók sér bessaleyfi og veitti Elvar Birni Ólafssyni verðlaun fyrir 4. sætið fyrir flutning sinn á laginu Easier Said Than Done. Heiðdís Pála Áskelsdóttir tók lagið This is a Mans World og hreppti 3. sætið og Íris Alma Kristjánsdóttir varð í 2. sæti fyrir flutning sinn á laginu Einhver,“ segir á vef MA.


COMMENTS