MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Báru olíu á dekk Hopp-hjóla

Eftir María Hjelm·
Hopp Akyreuri 2
kaffid.is

Ábendingar bárust til Evanger Ferðaþjónustu á Tröllaskaga um að olía hafi verið borin á dekk Hopp-hjóla í Ólafsfirði. Talið er að þetta sé gert í þeim tilgangi að láta hjólin spóla, en hins vegar getur olía á dekkjum valdið því að næsti notandi missi stjórn á hjólinu. Þetta kemur fram á vef Trolli.is.

Þar segir að Hopp-hjólin hafi verið tekin úr umferð á meðan þau eru hreinsuð og yfirfarin og þeir sem verða varir við skemmdarverk eða grunsamlega háttsemi í kringum hjólin eru beðnir um að hafa samband við fyrirtækið eða lögreglu.

Evanger Ferðaþjónusta hefur umsjón með 65 Hopp-hjólum á Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík. Í tilkynningunni er áréttað að öryggi notenda sé ávallt í fyrirrúmi og að öllum ábendingum af þessu tagi verði tekið alvarlega.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026