Í tilkynningu frá Knattspyrnudeild Þórs kemur fram að félagið hafi komist að samkomulagi við knattspyrnudeild FH um að Bjarni Guðjón Brynjólfsson snúi aftur til Þórs á lánssamningi.
Bjarni var seldur til Vals haustið 2023 en gekk síðar til liðs við FH um mitt sumar 2024. Þar hefur Bjarni leikið 28 leiki með FH í efstu deild og skorað tvö mörk.
„Bjarni fagnaði 22 ára afmæli sínu í gær og nýtti afmælisdaginn í að ferðast til móts við Þórsliðið sem dvelur nú við æfingar á Marbella á Spáni. Hann hefur leikið 68 leiki fyrir Þór í deild og bikar og skorað í þeim 17 mörk en alls hefur Bjarni leikið 97 leiki í meistaraflokki. Þá hefur hann leikið 14 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað eitt mark. Bjarni var kjörinn íþróttamaður Þórs 2022,“ segir á vef Þórs.


COMMENTS