Blóðbankinn flytur sig um set
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Blóðbankinn á Akureyri hefur um árabil verið á annarri hæð á Glerártorgi við innganginn hjá Nettó og Arion banka. Hann hefur nú fært sig um set, þó ekki langt, heldur á aðra hæð við norðurinnganginn á Glerártorgi, við hlið verslunarinnar Blush. Opnunarhátíð verður þann 16. nóvember milli klukkan 12 og 15, þar sem Blóðbankinn mun taka á móti vönum, nýjum og verðandi blóðgjöfum. Þar gefst þeim tækifæri til að skoða nýju aðstöðuna og fá sér kaffi og köku. Föstudaginn síðastliðinn opnaði bankinn og var Ingólfur Helgason fyrstur til að gefa blóð í nýja húsnæðinu.

Tengdar greinar
Uppfært: 14. nóvember 2026










