MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Pistlar

Dauðans alvara

Eftir Elín Ósk Arnarsdóttir·
elinosk
kaffid.is

Það er margt sem við vitum ekki í þessu blessaða lífi. En eitt vitum við alveg fyrir víst. Og það er að við munum deyja á endanum. Dauðinn getur verið ógnvænlegur þar sem enginn veit nákvæmlega hvað gerist þegar við deyjum. Við gerum hvað við getum til að fresta dauðanum eins og hægt er með stöðugri framþróun í læknisvísindum. Og margir forðast að tala um dauðann eins og heitan eldinn. En við ættum kannski að taka honum opnum örmum þar sem hann hjálpar okkur að setja hlutina í samhengi.

Fólk sem kemst í návígi við dauðann eða liggur á dauðabeðinu hefur gjarnan svipaðar hugsanir. Í fyrsta lagi áttar það sig á því hversu mikilvægt er að lifa lífinu fyrir sjálfan sig en ekki gera það sem aðrir ætlast til af manni. Þannig að ef að þig langar að ferðast um heiminn en ekki mennta þig, kaupa hús og eignast börn, gerðu það. Þú átt að gera það sem færir þér hamingju en ekki gera það sem samfélagið eða fólkið í kringum þig ætlast til af þér. Í öðru lagi sjá margir eftir því að hafa eytt alltof miklum tíma í vinnu. Ég segi alltaf: Vinna til að lifa, ekki lifa til að vinna. Allir þurfa á framfærslu að halda og yfirleitt felur það í sér að vinna einhvers staðar. Margir gera hins vegar þau mistök að vinna meira til að fá þá meiri pening en enda einfaldlega á því að eyða meiri pening en nauðsynlegt er. Og jafnvel kaupa eitthvað sem hefur litla merkingu fyrir líf manns. Að auki er lítill tími til að njóta lífsins ef þú ert alltaf í vinnunni. Þriðji punkturinn frá dauðvona fólki er mikilvægi þess að verja tíma með fólkinu sem þú elskar. Ást, kærleikur, nánd og tengsl er eitt af því dýrmætasta í þessu lífi. Og það fæst ekki keypt með peningum, eina leiðin til að fjárfesta í því er að gefa sér tíma til að rækta sambönd við annað fólk. Að lokum velta margir fyrir sér hamingjunni þegar lífinu er að ljúka. Við erum mörg með þá hugmynd að þegar við útskrifumst, þegar við finnum ástina, þegar við kaupum hús, þegar við eignumst barn, þegar við losnum við x kíló og þegar eitthvað ákveðið gerist, þá verðum við hamingjusöm. En hamingja er hugarástand, hamingja er ferðalag en ekki áfangastaður. Finndu fyrir hamingju hér og nú, þó að þú glímir við einhver vandamál, þó þú sért ekki búinn að afreka allt sem þig langar. Það þýðir ekki að bíða eftir að hamingjan banki upp á hjá þér, þú verður sjálf/ur að ná í hana.

Maður hefur heyrt af fólki sem fær ólæknandi sjúkdóm en það upplifir þakklæti fyrir hann. Af því að þegar það áttaði sig á því að það myndi deyja fljótlega, þá fór það virkilega að lifa lífinu. Við ættum hins öll að hugsa svona. Lifa eins og við séum að deyja, enda er það raunveruleikinn. Ég hugsa oft þegar ég er að taka ákvarðanir um líf mitt, hvað myndi ég velja að gera ef ég myndi deyja eftir 5 ár? Hvernig vil ég lifa lífinu mínu? Hvað vil ég eyða tímanum mínum í? Gera það sem er æskilegt eða gera það sem mig virkilega langar?

Hver dagur gæti verið síðasti dagurinn þinn. Spurningin er, hvernig ætlar þú að verja honum?

*The fear of death follows from the fear of life. A man who lives fully is prepared to die at any time*

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026