MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Drónabann um versló á hátíðarsvæði Einnar með öllu

Eftir María Hjelm·
droni-logreglan-a-nordurlandi-eystra-900×540-1
Mynd: akureyri.is· kaffid.is

Að beiðni Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra verður drónaflug bannað um verslunarmannahelgina á tilteknum svæðum á Akureyri og Siglufirði. Þetta kemur fram á vef akureyri.is

Drónabannið gildir frá klukkan 12 föstudaginn 31. júlí og stendur til klukkan 4 aðfararnótt mánudagsins 3. ágúst 2026.

Svæðið á Akureyri er hátíðarsvæði fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu við Akureyrarvöll. Svæðið er merkt með grænum ramma á myndinni að neðan.

Allt drónaflug er bannað á svæðinu nema með sérstöku leyfi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.

Drónabannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar 1360/2024.

Drónabann um versló á hátíðarsvæði Einnar með öllu

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026