Efla þróun og vægi lyfjafræði utan höfuðborgarsvæðisins

Efla þróun og vægi lyfjafræði utan höfuðborgarsvæðisins

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur veitt styrk til samstarfsverkefnis Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítala með það að markmiði að efla klíníska lyfjaþjónustu á Norðurlandi og um leið styrkja kennslu í lyfjafræði fyrir hjúkrunarfræðinema á svæðinu.

Í haust sóttu tveir lyfjafræðingar frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, þær Írís Gunnardóttir og Karítas Anja Magnadóttir, námskeið í hermileiðsögn á vegum Hermiseturs Íslands (HermÍS) í Reykjavík. Sem liður í að ljúka þjálfuninni fóru handleiðarar frá Landspítala og Háskóla Íslands, þær Freyja Jónsdóttir og Helga Kristinsdóttir, norður til Akureyrar til að styðja við innleiðingu og framkvæmd hermikennslu fyrir hjúkrunarfræðinga.

Í tilkynningu á samfélagsmiðlum Sjúkrahússins á Akureyri segir að verkefnið marki mikilvægt framfaraskref í undirbúningi Sjúkrahússins á Akureyri til að lyfjafræðingar taki aukinn þátt í þjálfun og kennslu heilbrigðisnema og starfsfólks.

COMMENTS