ELKO færir skurðlækningadeild SAk útvarp og kíki að gjöf
Eftir Ingólfur Stefánsson·

Skurðlækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri hefur fengið útvarp og kíki að gjöf frá ELKO á Akureyri. Gjöfin er ætluð í setustofu deildarinnar, þar sem sjúklingar geta hlustað á útvarpið og notið útsýnisins meðan á dvöl þeirra stendur. Þetta kemur fram á vef Sjúkrahússins á Akureyri, SAk, í dag.
„Það er dýrmætt að eiga notalegan stað til að setjast niður á á meðan maður dvelur á sjúkrahúsi. Stundum getur verið gott að hlusta á tónlist eða horfa út um gluggann og fylgjast með því sem gerist úti. Við þökkum ELKO á Akureyri kærlega fyrir að hugsa til sjúklinganna okkar,“ segja Thelma Kristjánsdóttir aðstoðardeildarstjóri og Bryndís María Davíðsdóttir deildarstjóri skurðlækningadeildar um gjöfina.
Tengdar greinar
Uppfært: 17. nóvember 2026










