Fálkaungar á Norðurlandi merktir með GPS-sendum

Sjö fálkaungar úr tveimur hreiðrum í Mývatnssveit voru merktir með GPS-sendum í sumar, en það var í fyrsta sinn sem slíkir sendar hafa verið notaðir til þess að fylgjast með ferðalögum fálka hér á landi. Gögnin sem söfnuðust sýna hve víðförull fugl fálkinn getur verið, en eftir að ungarnir yfirgáfu foreldra sína þvældust þeir um næstum allt Norðausturland.
Merkingarnar eru samstarfsverkefni Náttúrufræðistofnunar og Mohamed Bin Zayed Raptor Conservation Fund. Greint var frá þeim á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar (smella hér) í gær. Þar segir að með því að fylgja fuglunum eftir árið um kring vonist rannsakendur til að fá betri mynd af ferðum þeirra, búsvæðavali og lífslíkum. Ætlunin er að merkja fleiri fálkaunga næsta sumar.

Kortið hér að ofan sýnir ferðalög fálkaunganna sjö frá því að þeir yfirgáfu foreldra sína síðsumars og fram til 4. nóvember síðastliðins. Eftir að þeir yfirgáfu uppeldissvæðið byrjuðu þeir allir á að flakka víðsvegar um Norðurland, en flestir völdu þeir sé nýja heimahaga aðeins fáeinum dögum seinna. Eins og sjá má eru sum svæði greinilega vinsælli heimahagar en önnur, sérstaklega nágrenni Mývatns, Núpasveit, Melrakkaslétta og Þistilfjörður. Í greinargerð Náttúrufræðistofnunar segir að stærsti þátturinn í því hvar fálkar ákveði að koma sér fyrir sé fæðuframboð og þá aðallega hvar sé nóg af rjúpu.
Forvitnir lesendur geta skoðað greinargerð Náttúrufræðistofnunar um verkefnið með því að smella hér.
Tengdar greinar
Uppfært: 17. nóvember 2026










