Fish & Chips Lake Mývatn valinn bestur

Fish & Chips Lake Mývatn valinn bestur

Veitingastaðurinn Fish & Chips Lake Mývatn vann í dag verðlaunin International Fish and Chips Operator of the Year á The National Fish and Chips Awards 2026 sem fór fram á Park Plaza Westminster Bridge í London. Húsavík.com greindi frá.

Fulltrúar Fish & Chips Lake Mývatn eru stödd í London og tóku við verðlaununum síðdegis í dag. Fyrirtækið var eitt þriggja í úrslitum í alþjóðlegum flokki, sem besti alþjóðlegi fish and chips staðurinn. Fyrirtækið er starfrækt í Reykjahlíð, í sama húsnæði og Vínbúðin, og hefur verið starfandi síðan 2022.

Verðlaunin eru veitt af National Federation of Fish Friers sem eru opinber hagsmunasamtök breskra fish and chips-veitingastaða sem hafa það hlutverk að tryggja hæstu gæðastaðla og sjálfbærni í greininni. Samtökin starfa sem vettvangur fyrir þjálfun og vottun staða og standa að baki verðlaunanna.

COMMENTS