Fjórir MA-ingar í úrslit Líffræðikeppni framhaldsskólannaMynd/MA

Fjórir MA-ingar í úrslit Líffræðikeppni framhaldsskólanna

Líffræðikeppni framhaldsskólanna var haldin á dögunum. Fjórir MA-ingar komust áfram í úrslit keppninnar, sem fer fram laugardaginn 14. mars í Reykjavík. Það eru þær Diljá Mist Jensdóttir, Elsa Dís Snæbjarnardóttir og Fríða Björg Tómasdóttir sem allar eru í þriðja bekk og Rebekka Rán Bogadóttir sem er á fyrsta ári. Þess má geta að Elsa Dís tók einnig þátt í úrslitunum í fyrra. Þetta kemur fram á vef MA, þar segir einnig:

„Nemendur hafa oft mörg járn í eldinum og t.d. eru bæði Elsa Dís og Diljá Mist í stórum hópi LMA sem frumsýnir söngleikinn Ljóska alla leið 13. mars og ætla svo að drífa sig suður daginn eftir frumsýningu til að taka þátt í keppninni.“

„Á myndinni eru stúlkurnar fjórar ásamt lííffræðikennurunum, þeim Guðnýju Völu Þorsteinsdóttur, Hönnu Sigrúnu Helgadóttur og Ragnheiði Tinnu Tómasdóttur. Við óskum stelpunum og kennurunum innilega til hamingju með þennan góða árangur og óskum þeim góðs gengis 14. mars.“

COMMENTS