Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður SÁTTar og ráðgjafi hjá átröskunarteymi Landspítala, heldur fræðsluviðburði á Akureyri dagana 11. og 12. mars næstkomandi.
Verkefnið er hluti af víðtæku fræðslu- og forvarnarverkefni um átraskanir sem styrkt er af styrktarsjóði geðheilbrigðis. Markmiðið er að efla snemmtæka íhlutun, miðla þekkingu og opna á samtali um átraskanir og tengdar raskanir um land allt.
Elín, sem starfar sem lögfræðingur hjá Krýsuvík og er einnig jóga- og hugleiðslukennari, mun miðla af reynslu sinni til ólíkra hópa í ferðinni. Miðvikudaginn 11. mars verður boðið upp á fræðslu fyrir fagaðila hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands og á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Fimmtudaginn 12. mars klukkan 15:00 verður haldinn opinn fræðsluviðburður fyrir almenning í Grófinni. Síðar sama dag, klukkan 20:00, fer fram opinn jógatími í Sjálfsrækt heilsumiðstöð þar sem áhersla verður lögð á gleði og léttleika sem Elín segir mikilvægan þátt í að hlúa að geðheilsunni.
„Ég hef ferðast um landið með þetta verkefni og er afar þakklát fyrir þær góðu móttökur sem verkefnið (sem hefur tognað töluvert úr) hefur fengið hingað til. Það er greinilegt að þörfin fyrir opið samtal, miðlun þekkingar og aukið aðgengi að stuðningi er mikil um land allt,“ segir Elín.


COMMENTS