Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast

Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem saman leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs á árinu.

Sjá einnig: Síhækkandi ferðakostnaður íþróttafélaga og foreldra á landsbyggðinni

Áhersla er á að bæta og jafna tækifæri fólks til íþróttaiðkunar, einkum á landsbyggðinni, og að styðja betur við afreksíþróttafólk. Heildarfjárframlagið í samningunum fimm nemur samtals um 1,8 milljarði króna.

Sjá nánar á stjornarradid.is

COMMENTS