Náttúrufræðistofnun hefur birt niðurstöður sjöttu heildartalningar fugla í fólkvanginum Krossanesborgum á Akureyri. Talningin fór fram í maí og júní 2025 og er liður í vöktun sem staðið hefur yfir frá árinu 1998 með talningum á fimm ára fresti. Fjallað er um málið á vef Akureyrarbæjar.
Þar segir að alls hafi fundist 25 tegundir varpfugla á svæðinu, sami fjöldi og árið 2018. Heildarfjöldi varppara var hins vegar metinn 585 pör, sem er fækkun um tæplega 200 pör frá síðustu talningu. Fækkunin er sögð skýrast einkum af samdrætti í stofnum hettumáfa og sílamáfa.
Á móti kemur áframhaldandi fjölgun grágæsar og silfurmáfs og reyndist álft nú verpa í fólkvanginum í fyrsta sinn. Þá hefur áfram fækkað hjá nokkrum vaðfuglategundum, svo sem spóa, jaðrakani og stelki, í samræmi við þróun á landsvísu.
Talið er að breytt gróðurfar, aukin útbreiðsla kjarrs og skógar og aukin umferð um svæðið hafi áhrif á samsetningu fuglastofna.
„Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að halda áfram reglulegri vöktun fuglalífs í Krossanesborgum til að fylgjast með langtímabreytingum á svæðinu,“ segir á vef bæjarins.


COMMENTS