Fundu mynt sem er talin vera tæplega þúsund ára

Hafið er fjórða og síðasta ár fornleifauppgraftar á verbúðaminjum á Hafnabúðum á Skaga. Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðasafns Skagfirðinga, Minjastofnun Íslands, Arkeologisk museum, Universitetet i Stavanger, Háskóli Íslands á Hólum og UMass Boston, háskóla í Bandaríkjunum. Nú á dögunum fannst nokkuð merkilegur forngripur þegar fornleifafræðingar voru þar að störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Byggðasafn Skagfirðinga.
„Í Höfnum var verstöð frá 11. öld fram á þá 18. Nú hyllir undir lok rannsóknar og stendur nú yfir rannsókn á elstu mannvistarleifunum sem eru frá fyrri hluta 12. aldar.
Á öðrum degi uppgraftar birti heldur betur til hjá fornleifafræðingunum, sem vinna nú við frekar erfiðar kringumstæður sökum veðurviðvarana, en upp úr krafsinu kom mynt sem talin er vera frá tíma Ólafs kyrra Noregskonungs (1067-1093). Við þökkum Kevin Philbrook Smith kærlega fyrir aðstoðina við greininguna á myntinni. Myntin er sú fyrsta sem finnst við fornleifauppgröftinn í Höfnum og svo best sé vitað sú fyrsta sem finnst í verstöð frá þessum tíma hér á landi,“ segir í tilkynningunni.
Uppgröfturinn stendur fram að verslunarmannahelgi og verður hægt að fylgjast með framgangi hans á miðlum Byggðasafns Skagfirðinga.


Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










