Tanja Ýr Ástþórsdóttir og María Hólmgrímsdóttir koma fram á opnum viðburði hjá Drift EA fimmtudaginn 5. mars klukkan 20:00. Þær stofnuðu fyrstu umboðsskrifstofuna fyrir áhrifavalda á Íslandi árið 2016 og munu á fundinum fjalla um mótun starfsgreinarinnar hér á landi.
Í erindi sínu munu þær gera grein fyrir stofnun skrifstofunnar, þeim áskorunum sem mættu þeim við upphaf rekstursins og þeim lærdómi sem þær hafa dregið af starfsemi sinni síðustu ár. Erindið snýr að uppbyggingu nýrrar atvinnugreinar á íslenskum markaði, nýsköpun og þróun samfélagsmiðla. Að loknu erindi þeirra verður rými fyrir spurningar úr sal.
Viðburðurinn fer fram á Messanum hjá Drift EA. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum en vegna takmarkaðs sætafjölda er skráning nauðsynleg:
https://driftea.notion.site/2f770f5b7efe809a9938f67a20b6e2d1


COMMENTS