Gæludýraeigendur hvattir til að undirbúa sig fyrir flugeldasýningu um versló
Eftir María Hjelm·

Sunnudagskvöldið 2. ágúst verður flugeldasýning á miðnætti og skipuleggjendur Einnar með öllu hafa sent út ákall til hundaeigenda að gera ráðstafanir.
„Þann 2.ágúst (sunnudagskvöld) kl 00:00 aðfaranótt mánudags, verður flugeldasýning sem mun loka verslunarmannahelginni á Akureyri líkt og síðustu ár. Nú fer hátíðin fram á Akureyrarvelli og verður sýningin á klöppunum fyrir ofan við hliðina á löggustöðinni. Ég vildi bara láta hundaeigendur vita svo hægt væri að gera ráðstafanir. Vonandi raskar þetta ekki mikið,“ segir í tilkynningunni.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










