Gjögur, Frosti og Hlín færa Grenilundi höfðinglegar gjafir
Eftir Hákon Orri Gunnarsson·

Grenilundi bárust í haust höfðinglegar gjafir frá útgerðarfélögunum Gjögur hf. og Frosta ehf. ásamt kvenfélaginu Hlín. Félögin þrjú kostuðu kaup á blöðruskanna, sjúkradýnum og fleiru.
Blöðruskanni er ómskoðunartæki sem mælir magn þvags í þvagblöðru án þess að setja upp þvaglegg. Hann hjálpar til við að greina þvagteppu og hvort blaðran tæmist nægilega vel. Notkun blöðruskanna minnkar sýkingarhættu og getur komið í veg fyrir sjúkrahúsinnlagnir.
„Það er heimilinu ómetanlegt að eiga slíka bakhjarla að og eru þessum aðilum færðar alúðar þakkir fyrir,“ segir í tilkynningu á vef Grenivíkur.
Tengdar greinar
Uppfært: 10. nóvember 2026










