Glæsileg árshátíð Léttis og Funa

Hestamannafélögin Léttir og Funi í Eyjafirði héldu sameiginlega árshátíð laugardaginn 14. nóvember á Akureyri. Mikil gleði og góð stemning einkenndi kvöldið þar sem hestamenn komu saman til að njóta góðra veitinga, skemmtunar og samveru í góðum félagsskap.
Boðið var upp á glæsilegt hlaðborð og fjölbreytta skemmtidagskrá. Karlakór Eyjafjarðar steig á svið og gladdi gesti með söng sínum, Sæþór Már Hinriksson hélt utan um kvöldið sem veislustjóri og Danssveit Dósa sá um fjörið á dansgólfinu.
Á hátíðinni voru knapar ársins 2026 hjá báðum félögum heiðraðir fyrir góðan árangur á keppnisvellinum á liðnu tímabili.
Hjá Létti var Vera Evi Schneiderchen valin Knapi ársins 2026 í meistaraflokki. Mathilde Larsen var Knapi ársins 2026 í áhugamannaflokki, Hreinn Haukur Pálsson var Skeiðknapi ársins og Auður Karen Auðbjörnsdóttir Knapi ársins 2026 í ungmennaflokki.
Stefán Birgir Stefánsson var Knapi ársins 2026 í meistaraflokki hjá Funa og Steingrímur Magnússon, Knapi ársins 2026 í áhugamannaflokki.
Á árshátíðinni tók Hestamannafélagið Léttir einnig á móti staðfestingu á endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).
Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ afhendir Viðari Bragasyni Formanni Létti viðurkenninguna.
„Fyrir okkur snýst það að vera Fyrirmyndarfélag ÍSÍ fyrst og fremst um að hafa starfið okkar faglegt, vel skipulagt og í stöðugri þróun. Viðurkenningin veitir okkur ákveðið aðhald og hjálpar okkur að tryggja að umgjörðin utan um félags og íþróttastarfið sé eins góð og kostur er fyrir félagsmenn okkar,“ segir Viðar Bragason.
Árshátíðin var jafnframt kærkomið tækifæri fyrir félagsmenn til að koma saman utan hesthúsanna, eiga góða stund og efla enn frekar tengslin milli félaganna og félagsmanna.
Tengdar greinar
Uppfært: 17. nóvember 2026










