Gleði og samvera á Landsmóti skáta

Líf og fjör hefur einkennt Landsmót skáta á Hömrum þar sem þátttakendur halda áfram að njóta fjölbreyttrar dagskrár og skapa saman ógleymanlegar minningar.
Geysivinsæl kakókeppni, þar sem skátafélög kepptust um að útbúa besta kakóið, var haldin síðastliðinn þriðjudag. Að þessu sinni bar skátafélagið Kópar sigur úr býtum og hlaut farandbikar Landsmóts til varðveislu næstu þrjú árin. Þá hlutu kanadísku sveitirnar Bison Brigade og Campfire Coyotes sérstakar viðurkenningar fyrir sitt framlag til keppninnar.
Forsetahjónin, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason heimsóttu mótið í gær, líkt og Kaffið.is fjallaði um.
Á mótinu ríkir einstakur alþjóðabragur þar sem skátar frá fjölmörgum löndum kynnast, vinna saman og mynda ný vináttubönd. Á Landsmóti skapast gott tækifæri til að efla leiðtogahæfni, ábyrgð og alþjóðleg tengsl.
Enn er fjölbreytt dagskrá framundan og búast má við að gleðin, samveran og skátaandinn haldi áfram að setja svip sinn á Hamra næstu daga. Hátíðarkvöldvakan verður einn af hápunktum mótsins og markar glæsileg lok mótsins á laugardagskvöld.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










