Í tilefni af Bleikum október verður haldin bleik kvöldopnun þann 9. október á Glerártorgi í samstarfi við Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Opið verður frá 10-22.
„Það verður sannarlega líf og fjör alla helgina þar sem vinkonur, vinir, pör og fjölskyldur koma saman og njóta þess að eiga góðar stundir á Glerártorgi. Kvöldopnunin hefur verið ein sú vinsælasta á Glerártorgi undanfarin ár en það verða frábær tilboð í verslunum Glerártorgs alla helgina,“ segir í tilkynningunni.
Í ár verður mikið um að vera, Krabbameinsfélagið verður með sölubás á svæðinu frá kl. 15-17 og 20-22 og Brakkasamtökin sýna áhrifaríka ljósmyndasýningu: Of ung fyrir krabbamein – Saga Sóleyjar sem stendur út október. Einnig verður bleikur kassi staðsettur hjá sýningunni með skemmtilegum leik. Ef verslað er fyrir 10.000kr eða meira geta gestir fengið kaupin endurgreidd í formi gjafakorts frá Glerártorgi. Dregið verður einn heppinn aðili úr kassanum 13. Október. Til að taka þátt þarf að skrifa nafn og símanúmer á kvittunina og setja í kassann.
Það verða fjölbreyttar kynningar meðal annars frá BIO Effect, Halldóri Jónssyni, Vera Design, Sorgarmiðstöðinni og einnig verða kynningar og ráðgjöf í Lyf og heilsu. Þar verður boðið upp á fría snyrtingu og lökkun sem fylgir með í kaupbæti ef verslað er OPI naglalakk. Blush verður með sölubás og lukkuhjól fyrir þá sem þar versla eftir kl. 18.
Þá munu fyrirtæki á borð við Kjörís að gefa Bestís eftir kl. 16:00, Heildverslunin Steindal að bjóða upp á Happy Monkey eftir kl. 16, Töst og Rosé Lemonade eftir kl 19:30 og MS með óðalsosta smakk. Sunna Spákona spáir fyrir gesti og gangandi milli 20:00 og 22:00 og Salsa North verður með danskennslu kl. 20:00 í salsa og bachata. Góðir tónar munu óma um húsið fram eftir kvöldi en Kristján Edelstein og Stefán Ingólfs munu sjá um huggulega stemningu á göngugötunni og DJ Helga Margrét spilar góða tóna í Lindex.
„Dagskráin hefst um hádegi og stendur fram eftir kvöldi – notaleg stemning og uppfull af stuðningi og samstöðu.“
Föstudaginn 10. Október er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn og verður kynning á starfsemi Grófarinnar og Geðverndarfélaginu milli kl. 14 og 17:30. Laugardaginn 11. Október verður PubQuiz með Ása Guðna í Iðunni Mathöll frá kl. 20-22.


COMMENTS