Grunnnám í forritun hefst hjá Símey í janúar
Opið fyrir skráningar

Þann 25. janúar 2027 hefst í SÍMEY Grunnnám í forritun, nám sem byggir á vottaðri námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námið verður allt í fjarnámi. Kennari verður Atli Freyr Einarsson, sem starfar sem kerfisstjóri í MA og VMA og kennir einnig stærðfræði í VMA. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á þetta nám í SÍMEY.
Eins og yfirskrift námsleiðarinnar gefur til kynna verður farið í alla grunnþætti forritunar og því þurfa þátttakendur ekki að vera sérfræðingar í tölvum. Farið verður í alla grunnþætti forritunar og fjallað um helstu forritunarmálin. Markmiðið er að efla skilning og hæfni þátttakenda á grunnþáttum forritunar, hvernig forritin eru byggð upp og þjálfun í að búa þau til.
Í það heila er námið 80 klukkustundir. Sem fyrr segir hefst það 25. janúar 2007 og lýkur 6. maí. Námið skiptist í fjóra efnisflokka (í tímaröð frá janúar til maí:): Grunnhugtök forritunar, forritunarleg hugsun, forritun og kóðun og hagnýt forritun.
Fyrirlestrar verða birtir tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum, og horfa þátttakendur á þá þegar þeim hentar. Til viðbótar verða lögð fyrir verkefni og yfir þau verður farið á netfundum, oftast á fimmtudögum.
Nú þegar er opið fyrir umsóknir í námið og er umsóknarfrestur til 10. janúar nk. Upplýsingar um forritunarmál eru jafnan á ensku og því er æskilegt að þátttakendur búi yfir lágmarks enskukunnáttu.
Námsgjaldið er kr. 32.800 og verður það innheimt í byrjun janúar 2027. Umsækjendum er bent á möguleika á styrkjum frá stéttarfélögum og fræðslusjóðum.
Hér eru upplýsingar um námið. Helena Sif Guðmundsdóttir (helena@simey.is) og Andrea Laufey Hauksdóttir (andrea@simey.is) verkefnastjórar í SÍMEY veita áhugasömum frekari upplýsingar.
Tengdar greinar
Uppfært: 27. nóvember 2026





