Í nótt barst tilkynning til lögreglunnar á Norðurlandi eystra um heimilisofbeldi í heimahúsi á Húsavík og að hnífi hafi verið beitt. Þegar lögregla og sjúkralið komu á vettvang kom í ljós að þar voru tveir aðilar með áverka. Annar aðilinn er með talsverða áverka en ekki lífshættulega og líklega eftir eggvopn. Var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík til aðhlynningar. Áverkar hins aðilans eru minni háttar. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra en málið er á frumstigi og unnið er að rannsókn þess.


COMMENTS