Guðmundur Helgi skrifar undi við KA

Guðmundur Helgi skrifar undi við KA

Guðmundur Helgi Imsland skrifaði í fyrradag undir samning hjá Handknattleiksdeild KA og spilaði strax sinn fyrsta leik fyrir félagið er hann kom inn á í 29-23 sigri KA á Þór í opnunarleik KG Sendibílamótsins. KA greindi frá á vef sínum.

Guðmundur Helgi sem er fæddur árið 2004 er markvörður sem kemur norður frá Fjölni. Hann er uppalinn í ÍR en lék einnig með ungmennaliði Vals áður en hann gekk í raðir Fjölnis þar sem hann lék á síðustu leiktíð.

„Það er afar jákvætt að fá Guðmund í okkar raðir en hann er að flytja norður vegna náms og klárt að það mun styrkja hópinn okkar að fá hann í markmannsteymið okkar,“ segir á vef KA.

Andri Snær Stefánsson þjálfari liðsins segir Guðmund hafa staðið sig vel á æfingum og komið flott inn í hópinn. KA og Þór mætast svo aftur á sunnudaginn í KA-Heimilinu kl. 15:00.

COMMENTS