MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Pistlar

Gulur september

Eftir Elín Ósk Arnarsdóttir·
elinosk
kaffid.is

Vitundarvakning snýst um að gera fólk meðvitaðra um ákveðið málefni, vandamál eða hugmynd þar sem í kjölfarið það fer að ræða það, fræðast um það eða bregðast við því. Blár apríl er til dæmis vitundarvakning um einhverfu, bleikur október vekur athygli á brjóstakrabbameini og gulur september er vitundarvakning sem snýst um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. Þar sem við erum jú stödd í september er tilvalið að velta aðeins upp því málefni.

Sjálfsvíg er ein algengasta dánarorsök ungs fólks á Íslandi og er þetta útbreitt vandamál um allan heim. Samkvæmt tölum frá Alþjóðaheilbrigðisstofnun má rekja yfir 700.000 dauðsfalla á ári til sjálfsvíga en sjálfsvígstilraunir eru margfalt fleiri eða um 16 milljónir tilraunir árlega. Þetta eru skuggalegar tölur sem vonandi er hægt að minnka með forvörnum og átaki eins og gulum september.

Áður en einstaklingur gerir plön um sjálfsvíg koma fyrst sjálfsvígshugsanir en það eru hugsanir um að deyja eða binda endi á líf sitt. Sumir upplifa þessar hugsanir sem veikleikamerki en þær eru í rauninni bara merki um gríðarlega mikla vanlíðan og sársauka. Lífið er ekki auðvelt og stundum verða áföll, vandamál og áskoranir svo yfirþyrmandi að einstaklingur missir alla von og sér enga leið út. Það er svo mikilvægt að grípa fólk á þessu augnabliki og hjálpa því eins og hægt er. Mikilvægast af öllu er að fá viðkomandi til að tala við einhvern, hvort sem það er fjölskyldumeðlimur, vinur eða einhvers konar ráðgjafi. Það eru ýmis samtök sem hægt er að leita til eins og Píeta samtökin, Bergið headspace og Rauði krossinn. Ef viðkomandi er í einhverri hættu skal hringja í 112 eða fara beint á bráðamóttöku.

Á heimasíðu Píeta samtakanna er listi yfir breytingar á hegðun og líðan einstaklinga sem geta verið vísbendingar um sjálfsvígshættu. Til dæmis er rautt viðvörunarflagg þegar einstaklingar fara að gefa frá sér eigur sínar, ganga frá fjármálum, einangra sig, tala um að vilja ekki lifa lengur, misnota vímuefni eða stunda einhvers konar áhættuhegðun. Tilfinningalegar breytingar eru til dæmis mikið vonleysi, kæruleysi, kvíði, pirringur, óstöðugt geðslag og tilgangsleysi. Verði maður var við slík merki hjá fólkinu í kringum sig er best að spyrja viðkomandi betur út í þessar breytingar og hvetja hann til að leita sér hjálpar.

En hvað með þegar fólk er tilbúið að fá hjálp en kemur að lokuðum dyrum? Það er auðvitað stórhættulegt og eru dæmi um að fólki er vísað frá þjónustu og fremur í kjölfarið sjálfsvíg. Mitt ráð er að ef þú kemur að lokuðum dyrum einhvers staðar, farðu og finndu aðrar dyr sem þú getur bankað á. Það er alls ekki auðvelt en það er alltaf einhverja hjálp að fá einhvers staðar. Stundum tekur bara smá tíma að finna hana. Mikilvægast er að vita að þú ert ekki ein/n og lífið verður allt í einu miklu viðráðanlegra þegar maður hefur stuðning frá öðru fólki.

There is hope, even when your brain tells you there isn’t

Tengdar greinar

Uppfært: 20. september 2026