Upphátt – Stóra upplestrarkeppnin fór fram í Brekkuskóla á þriðjudaginn. Nemendur í 7. bekk taka þátt en tveir fulltrúar voru valdir til að keppa fyrir hönd skólans úr forkeppni. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ kemur fram að Hákon Geir Snorrason úr Lundarskóla sigraði keppnina.
Í ár áttu sjö skólar fulltrúa í keppninni og því voru það 14 nemendur sem lásu part úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson og ljóð eftir valda höfunda. Í þriðja hlutanum lásu nemendur ljóð að eigin vali. Í dómnefnd sátu Eyrún Huld Haraldsdóttir, Hrund Hlöðversdóttir og Þorsteinn Gunnar Jónsson.
Verðlaunasæti Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri 2026 hrepptu:
- Hákon Geir Snorrason, Lundarskóla, 1. sæti
- Birgitta Ósk Orradóttir, Brekkuskóla, 2. sæti
- Friðrik Örn Ingólfsson, Glerárskóla, 3. sæti
Í aðdraganda hátíðarinnar var blásið til keppni meðal 7. bekkja um besta veggspjaldið. Teikning eftir Bryndísi Matthíasdóttur, nemanda í 7. bekk Brekkuskóla sigraði og prýddi veggspjald Upphátt, viðurkenningarskjöl og boðskort keppninnar.
Strengjasveit nemenda í Tónlistarskólanum á Akureyri sáu um tónlistarflutning og unglingasöngdeild skólans stigu á svið og spiluðu fyrir gesti.


COMMENTS