MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Hallgrímur Mar bestur hjá KA

Eftir Ingólfur Stefánsson·
hallgrimurmar
Mynd: KA.is· kaffid.is

Lokahóf knattspyrnudeildar KA fór fram um helgina en KA lauk sumrinu með 5-1 heimasigri á ÍBV. Það dugði KA þó ekki til að bjarga sér frá falli úr Bestu deild karla í fótbolta. Hallgrímur Mar Steingrímsson var valinn besti leikmaður liðsins og Mikael Breki Þórðarson var valinn efnilegasti leikmaður KA.

„Niðurstaða sumarsins er vissulega mikil vonbrigði en þrátt fyrir erfitt sumar á vellinum var stuðningur KA fólks algjörlega til fyrirmyndar frá upphafi og til enda og ómetanlegt að finna fyrir kraftinum í félaginu. Það er klárt mál að við munum læra af sumrinu og komum sterk til baka,“ segir á vef KA.

Frekari upplýsingar um lokahóf knattspyrnudeildar KA má finna á vef félagsins með því að smella hér.

Tengdar greinar

Uppfært: 29. október 2026