Hallgrímur og Hans valdir í landsliðið

Hallgrímur og Hans valdir í landsliðið

Tveir leikmenn frá Knattspyrnufélagi Akureyrar hafa verið valdir í A-landslið Íslands í fótbolta fyrir vináttuleik gegn landsliði Mexíkó í Mexíkó þann 25. febrúar næstkomandi. Þetta eru þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Hans Viktor Guðmundsson.

Íslenski landsliðshópurinn er að þessu sinni mest skipaður leikmönnum úr íslensku deildinni þar sem leikurinn er spilaður utan alþjóðlegs landsleikjaglugga.

Hallgrímur er 35 ára gamall og fær nú tækifæri til þess að spila sinn fyrsta landsleik. Fyrrum leikmenn KA, Birnir Snær Ingason og Daníel Hafsteinsson eru einnig í hópnum.

Hópur Íslands:

Aron Elís Þrándarson – Víkingur R.

Anton Ari Einarsson – Breiðablik

Viktor Freyr Sigurðsson – Fram

Höskuldur Gunnlaugsson – Breiðablik

Karl Friðleifur Gunnarsson – Víkingur R.

Damir Muminovic – Grindavík

Hans Viktor Guðmundsson – KA

Guðmundur Kristjánsson – Stjarnan

Guðmundur Þórarinsson – ÍA

Baldur Kári Helgason – FH

Gylfi Þór Sigurðsson – Víkingur R.

Haukur Andri Haraldsson – ÍA

Kolbeinn Þórðarson – IFK Göteborg

Daníel Hafsteinsson – Víkingur R.

Birnir Snær Ingason – Stjarnan

Hallgrímur Mar Steingrímsson – KA

Valdimar Þór Ingimundarson – Víkingur R.

Ágúst Orri Þorsteinsson – Breiðablik

Helgi Guðjónsson – Víkingur R.

Emil Atlason – Stjarnan

COMMENTS