Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi lóða við Hofsbót. Tillagan samræmist meginforsendum gildandi skipulags frá 2023 og gerir ekki ráð fyrir auknu byggingarmagni eða hærri húsum. Greint er frá í tilkynningu á vef bæjarins í dag.
„Hugmyndin byggir á sterkri tengingu við sögu og umhverfi svæðisins við Pollinn. Hönnunin sækir innblástur í mjúkar línur skútanna sem áður lágu þar við festar og minna bogadregnir gluggar og ávalar efri hæðir á segl og öldur og skapa lifandi heild sem kallast á við Menningarhúsið Hof og smábátahöfnina,“ segir á Akureyri.is
Gert er ráð fyrir 53 íbúðum af fjölbreyttum stærðum, verslun og þjónustu á jarðhæðum og skrifstofum að hluta. Þá er fyrirhugað að fjölga bílastæðum úr um 60 í 90 með stærri bílakjallara, sem styrkir aðgengi að miðbænum.
Ein helsta breytingin frá gildandi skipulagi er að þakgarður færist niður á jarðhæð og verður að sólríku og skjólgóðu almenningstorgi og kærkomnum samkomustað í hjarta bæjarins þar sem skortur hefur verið á skjólgóðu torgi við miðbæinn.
„Áhersla verður lögð á vandaða hönnun og gott samráð við umhverfis- og mannvirkjasvið, Norðurorku og Vegagerðina en uppbyggingin er mikilvægt skref í áframhaldandi þróun hafnarsvæðisins,“ segir á vef bæjarins.
Hér er hægt að skoða fleiri myndir.


COMMENTS