Sönghópurinn Voces8 heldur tónleika ásamt finnska konsertorganistanum Pétri Sakari og Kammerkór Norðurlands í Akureyrarkirkju mánudagskvöldið 29. september næstkomandi klukkan 20. Stjórnandi Kammerkórsins er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Voces8 er breskur sönghópur skipaður átta söngvurum sem hafa heillað áheyrendur um heim allan. Þau hafa verið kölluð „Rolls-Royce“ breska sönghópa og hlotið margvíslegar viðurkenningar, meðal annars Grammy útnefningu.
Voces8 heimsækir nú Ísland sem hluta af afmælistónleikaferðinni Twenty, sem er haldin í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá stofnun hópsins. Auk tónleikanna í Akureyrarkirkju heldur Voces8 söngsmiðju í Reykjavík fyrir fjóra kóra í samstarfi við Landssamband blandaðra kóra og Félag íslenskra kórstjóra. Meðal þessara fjögurra kóra er Kammerkór Norðurlands og segja kórmeðlimir það vera mikinn heiður að fá að taka þátt í svona metnaðarfullri smiðju. Afrakstur hennar verða tónleikar ásamt Voces8 í Hörpu 30. september klukkan 20.


COMMENTS