MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Helga Þóra til liðs við VÍS

Eftir Ingólfur Stefánsson·

Helga Þóra Helgadóttir hefur hafið störf hjá VÍS sem viðskiptastjóri fyrirtækja á Akureyri. Helga Þóra hefur víðtæka reynslu af tryggingamarkaði. Hún starfaði síðast sem þjónustustjóri hjá Sjóvá frá árinu 2023 en áður  sem ráðgjafi og sölustjóri hjá félaginu á árunum 2018–2023.

Helga Þóra er með BA-gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri einnig er hún vottaður vátryggingafræðingur. Hún er í meistaranámi í samskiptastjórnun við Háskólann á Bifröst og hefur einnig lokið jógakennaranámi.

„Það eru ótrúlega spennandi tímar hjá VÍS sem hefur verið í mikilli sókn undanfarið. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri vegferð. Verkefnin eru fjölbreytt og mér hefur verið tekið einstaklega vel innan hópsins,“ segir Helga Þóra. 

„Það er mikill fengur að fá Helgu Þóru til liðs við okkur. Hún býr yfir víðtækri  reynslu af tryggingamarkaðnum sem mun nýtast vel í þeim verkefnum sem fram undan eru,“ segir Björn Þórhallsson, forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS.

Tengdar greinar

Uppfært: 26. nóvember 2026