Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri hafa fært endurhæfingardeild SAk góðar gjafir; þrjá hægindastóla sem nýtast við vax- og hitameðferð í iðjuþjálfun, þar sem slökun og mýking eru mikilvægir þættir í meðferð við t.d. gigtarverkjum og stirðleika, tvær spjaldtölvur sem verða notaðar við þjálfun og fræðslu í sjúkra- og iðjuþjálfun og ýmiss konar minni þjálfunarbúnað sem gefur kost á að auka fjölbreytni í þjálfun.
Markmið Hollvina SAk er að styðja og styrkja starfsemi sjúkrahússins, meðal annars með því að vekja athygli á mikilvægi hennar og standa fyrir fjáröflun í samráði við framkvæmdastjórn.
„Við hjá SAk erum afar þakklát fyrir þennan mikilvæga stuðning sem nýtist beint í þágu skjólstæðinga okkar og eflir faglega þjónustu á endurhæfingardeildinni,“ segir á vef SAk.


COMMENTS