Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari mun leika einleik á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem haldnir eru til heiðurs tónskáldinu Jóni Nordal sunnudaginn 8. mars í Hofi.
Steinunn rifjar upp fyrstu kynni sín af tónlist Jóns og hlakkar mikið til að flytja sellókonsert eftir hann með sinfóníuhljómsveitinni.
„Mér þykir mjög vænt um tónlist Jóns Nordal. Ég lærði verkið Myndir á þili, fyrir selló og píanó, þegar ég var unglingur í sellónámi hjá Gunnari Kvaran. Það er undurfallegt verk,“ segir Steinunn og minnist þess að hafa síðar kennt sama verk fyrsta veturinn sinn sem kennari við Tónlistarskólann á Akureyri. „Það var líka dásamlegt og unun að hlusta á afraksturinn!“
Þegar Steinunni bauðst að flytja sellókonsert Jóns Nordal með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands kveðst hún strax hafa orðið spennt.
„Sá konsert reyndist ekki síður fallegur. Það er yndislegt að æfa hann og ég er mjög spennt að heyra í hljómsveitinni og fara að setja saman þessa tvo parta; sellópartinn og hljómsveitarpartinn. Ég hlakka mikið til að heyra allt það sem hljómsveitin finnur upp á að töfra fram. Enda þykir mér líka ógn vænt um Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, og mér finnst fallegt og kúl að hún skuli gera tónlist og minningu Jóns Nordal svo vegleg skil.“
Að hennar mati er konsertinn nánast eins og dúett, þar sem annað hljóðfærið er sellóið og hitt er sinfóníuhljómsveitin.
„Það er dálítið fyndið jafnvægi í þessu dúói. Enda finnst mér húmorinn lúra undir niðri í verkinu, þó það sé almennt laust við stæla og óþarfa vesen. Það er eiginlega bara mjög falleg og blátt áfram músík.“
Í lokin segir Steinunn sérstaka tilfinningu felast í því að flytja verkið í dag.
„Mér finnst gaman til þess að hugsa að þegar ég var tveggja ára hafi einhver maður á Íslandi setið við að semja þessa músík. Og nú er hún fjörutíu og tveggja ára, að verða fjörutíu og þriggja. Strax orðin pínulítið þroskuð, og ég held að hún sé okkur ekkert rosalega framandi eða ofur-nútímaleg. Eiginlega bara íslensk tuttugustu aldar list af fegurstu gerð.“
Hér má kaupa miða á tónleikana.


COMMENTS