MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Pistlar

Hver spyr?

Eftir Ritstjórn·
grein
kaffid.is

Ásta Kristín Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og nemi í heilabilunarráðgjöf við Háskólann á Akureyri, skrifar

Einmanaleiki er ekki bundinn við einn aldur. Fólk á miðjum aldri getur verið jafn einmana og þeir sem eru orðnir áttræðir og búa einir. Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands frá 2023 er um sjötti hver eldri Íslendingur nokkuð eða talsvert einmana.

Vinnan veitir daglegan félagsskap, rútínu og tilgang. Þeir sem standa utan vinnumarkaðar, hvort sem það er vegna veikinda, örorku, atvinnuleysis eða aldurs, missa oft þennan ramma. Margir búa einir og fjölskyldan er upptekin, áhugalaus eða býr fjarri. Dagarnir verða lengri og samskiptin færri.

Einmanaleiki snýst heldur ekki bara um þann fjölda fólks sem er í kringum mann. Það er hægt að eiga maka, börn og vini og samt vera einmana. Sumir sakna þess að tilheyra hópi og hafa hlutverk. Aðrir sakna þess að einhver spyrji um þá sjálfa eða sýni þeim áhuga.

Margir fylla tómarúmið með áfengi. Rauðvín með matnum um helgar verður að rauðvíni á hverju kvöldi. Það er drukkið þegar einhverju er fagnað og til að deyfa þegar illa gengur. Fram hefur komið í Læknablaðinu að víndrykkja hafi aukist hvað mest hjá fólki sem nálgast eftirlaunaaldur. Ástæðurnar eru margar. Einmanaleiki er ein. Sorg er önnur, því með árunum missir fólk maka, vini og systkini. Sumir hafa misst getuna til að sinna því sem áður fyllti dagana. Aðrir hafa meiri tíma og fjárráð en áður til þess að veita sér áfengi. Kynslóðin sem nú nálgast eftirlaunaaldur hefur annað viðhorf til áfengis en foreldrar hennar. Vín með mat varð sjálfsagður hluti af hversdeginum og sú venja fylgir fólki inn í efri árin.

Áfengisvandi eldra fólks hefur lengi verið falinn, því fáir spyrja og fáir segja frá. En athygli almennings og heilbrigðisstarfsfólks er að aukast. Vandinn kemur æ oftar í ljós, bæði þegar eldra fólk leitar til heilbrigðisþjónustunnar eftir byltu og þegar nánir ættingjar verða varir við neysluna.

Það sem færri vita er að bæði einmanaleiki og mikil áfengisneysla auka líkur á heilabilun. Alþjóðleg sérfræðinganefnd á vegum læknatímaritsins The Lancet hefur bent á fjórtán áhættuþætti sem hægt er að hafa áhrif á. Nefndin telur að með því að huga að þeim megi koma í veg fyrir eða seinka nær helmingi heilabilunartilfella. Félagsleg einangrun og of mikil áfengisdrykkja eru þar á meðal.

Samskipti við annað fólk reyna á heilann. Að hlusta, muna, skilja og svara heldur honum virkum. Áfengi skaðar hins vegar heilann og mikil drykkja til langs tíma getur sjálf valdið heilabilun.

Einkenni of mikillar drykkju og byrjandi heilabilunar geta líka líkst hvort öðru, til dæmis gleymska, rugl og breytt hegðun. Því skiptir máli að spyrja um áfengineyslu þegar eldri einstaklingur fer að gleyma og sýna merki um að eitthvað sé ekki í lagi.

Að hringja, líta við eða spyrja hvernig fólki líður kostar lítið en getur skipt miklu máli.

Tengdar greinar

Uppfært: 20. október 2026