Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur auglýst tillögu að nýrri íbúðabyggð á Árskógssandi sem felur í sér að íbúðarsvæði þar stækkar um 3,7 hektara. Skipulagið gerir ráð fyrir fjölbreyttum húsnæðiskostum, þar á meðal einbýlishúsum og smáíbúðum, ásamt því að þéttbýlismörk verða færð út meðfram bökkum Þorvaldsdalsár.
Kynningarfundur um verkefnið verður haldinn í Félagsheimilinu Árskógi miðvikudaginn 25. febrúar klukkan 17:00 þar sem hönnuðir fara yfir áformin. Gögnin liggja frammi í Ráðhúsi Dalvíkur og á Skipulagsgátt og er frestur til að skila inn athugasemdum til 2. mars næstkomandi.

Nánar á vef Dalvíkurbyggðar.


COMMENTS