Sparisjóðirnir
MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Ilmferðalag og sýning um íslenska jökla

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
Listasafn Akureyrar

Sýningaropnun verður haldin í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi klukkan 20:00. Kvöldið hefst á ilmferðalagi á vegum Fischersund og í kjölfarið verður sýningin Bráðnun opnuð í Ketilhúsi.

Húsið opnar klukkan 19:30 en ilmferðalagið hefst klukkan 20:00. Ilmferðalaginu er lýst sem „ilmferðalagi þar sem lykt, sögur og skynjun fléttast saman í einstaka upplifun.“

Bráðnun er sýning um íslenska jökla sem opnar í Ketilhúsi. Ljósmyndir, rannsóknir, gögn, hljóð, lykt og innsetningar um sögu jöklanna frá fortíð til framtíðar. „Hvað verður eftir af íslenskum jöklum eftir 100 ár?“

Tíminn og vatnið - Kvikmyndasýning og erindi

Í tengslum við sýninguna verður heimildamyndin Tíminn og vatnið (Time and Water) sýnd í fjögur skipti. Hver sýning hefst kl. 14:30 á erindi frá Jöklarannsóknafélagi Íslands þar sem fjallað verður um jökla Íslands, rannsóknir á þeim og mikilvægi sjálfboðaliðastarfs við vöktun þeirra. Kvikmyndin hefst síðan kl. 15:00.

  • Föstudagur 27. nóvember 2026: Jöklarannsóknafélag Íslands (Jöklafössari) og kvikmyndasýning.
  • Laugardagur 5. desember 2026: Jöklarannsóknir og þátttaka almennings.
  • Laugardagur 12. desember 2026: Jöklar Íslands, þá og nú.
  • Laugardagur 9. janúar 2027: Sporðamælingar með augum sjálfboðaliða (lokadagur sýningarinnar).

Viðburðir og sýning eru haldin með stuðningi 66°Norður.

Tengdar greinar

Uppfært: 23. nóvember 2026