Listasýning í Skjólbrekku

Helgina 14. – 15. nóvember verður haldin samlistasýning í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Sýningin verður opin báða daga frá kl. 12:00 – 16:00. Sýningin blandar saman ólíku listafólki sem hefur það sameiginlegt að tengjast Þingeyjarsveit á einhvern hátt. Áhuginn á sýningunni hefur farið fram úr björtustu vonum en það eru 18 manns að taka þátt og sýna verkin sín.
Allt félagsheimilið verður því undirlagt af list um helgina. Einnig verður kaffi á könnunni og sveitungar eru hvattir til að kíkja við til að dást að listinni, segja sögur og spjalla. Þetta verður ekki hefðbundin sölusýning en ef áhugasamir kaupendur leynast innan um gestina er þeim bent á að annað hvort hafa samband við listamanninn sjálfan eða Önnu Dagbjörtu Andrésdóttur sem sér um viðburðinn.
Listamennirnir sem verða á sýningunni birtast hér í stafrófsröð: Anna Dagbjört Andrésdóttir, Arnþrúður Anna Jónsdóttir, Auður Filippusdóttir, Ásgrímur Þórhallsson, Áslaug Anna Jónsdóttir, Bianca Maria Paregger, Ester Hilmarsdóttir, Guðbrandur Arngarður Halldórsson, Halldóra Eydís Jónsdóttir, Hannes Lárus Hjálmarsson, Ingibjörg Eyfjörð Hólmgeirsdóttir, Myrra Leifsdóttir, Ólafur Sveinsson, Sigurborg Gunnlaugsdóttir, Soffía Kristín Jónsdóttir, Sylvía Halldórsdóttir, Timo Hooghiemstra, Zorka Mäsisrová
Anna Dagbjört Andrésdóttir býr í Mývatnssveit með eiginmanni sínum sem er kúabóndi og dætrum þeirra tveimur. Árið 2025 hóf hún verkefni sem kallað er Maður er manns gaman. Markmiðið er að bjóða upp á viðburði í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit sem auðga menningu í Þingeyjarsveit, íbúum að kostnaðarlausu. Þingeyjarsveit styrkir verkefnið með því að gefa aðgang að Skjólbrekku ásamt því styrkir Landsvirkjun verkefnið í ár. Maður er manns gaman hlaut Menningarverðlaun Þingeyjarsveitar þann 17. júní 2026.
Tengdar greinar
Uppfært: 11. nóvember 2026










