Ívar Logi skrifar undir við KALjósmynd/KA

Ívar Logi skrifar undir við KA

Ívar Logi Jóhannsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA. Ívar er 18 ára gamall miðjumaður og kemur frá Hetti á Egilsstöðum. Þetta kemur fram á vef KA, þar segir einnig:

„Ívar Logi er spennandi leikmaður sem er með góða tækni og er vel spilandi. Þrátt fyrir ungan aldur lék hann 18 af 22 leikjum meistaraflokks Hattar/Hugins síðasta sumar auk þess að leika með 2. flokksliði KA/Dalvíkur/KF/Hattar/Hamrannar. Ívar Logi er metnaðarfullur leikmaður sem er duglegur að æfa aukalega og hefur sú vinna skilað sér vel í vetur þar sem hann hefur sýnt miklar framfarir.“

COMMENTS