Jólatorgið á Ráðhústorgi verður opnað laugardaginn 29. nóvember þegar ljósin á jólatrénu verða tendruð við hátíðlega athöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.
„Til þess að skapa enn meiri jólastemningu í kringum torgið eru hagsmunaaðilar í miðbænum hvattir til að leggja sitt af mörkum með því að skreyta, hafa opnunartímann í samræmi við opnunartíma Jólatorgsins, bjóða upp á viðburði eða annað slíkt. Viðburðir og lengri opnunartímar verða auglýstir á jolatorg.is,“ segir í tilkynningu bæjarins.
Jólatorgið verður opið fjórar helgar, laugardaga og sunnudaga frá klukkan 15 til 18. Átta skreytt jólahús verða á torginu þar sem fjölbreyttur söluvarningur verður í boði og að sjálfsögðu mæta jólasveinarnir alla dagana.
Allar upplýsingar um Jólatorgið eru að finna á www.jolatorg.is.


COMMENTS