MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

Jón Ingi bætti sjö ára gamalt Íslandsmet

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
905321678_1746421409786285_7893846912585313145_n
Ljósmynd: Sundfélagið Óðinn· kaffid.is

Íslands- og Unglingameistaramótið í 25m laug 2026 fer fram í Ásvallalaug í Reykjavík um helgina. Sundfélagið Óðinn á Akureyri sendi nokkra sundkappa suður á mótið og sýndu þeir heldur betur flotta takta á fyrsta degi mótsins í gær.

Jón Ingi Einarsson synti 50m skriðsund í gær á 24,08 sekúndum og bætti þar með sjö ára gamalt Íslandsmet í aldursflokknum 15 ára og yngri. Þannig bætti hann einnig Akureyrarmet í 50m skriðsundi, bæði í aldursflokknum 15–17 ára og í opnum flokki.

Einnig féllu fleiri Akureyrarmet í gær, en Alexander Reid McCormick setti nýtt Akureyrarmet í 100m bringusundi aldursflokknum 15–17 ára. Þar að auki bættu drengjasveitir Óðins Akureyrarmet í tveimur boðsundsgreinum: 4x50m fjórsundi og 4x200m skriðsundi. Sveitirnar voru skipaðar Alexander Reid McCormick, Jóni Inga Einarssyni, Birni Elvari Austfjörð, Magna Rafni Ragnarssyni og Ívani Elí Ólafssyni.

Tengdar greinar

Uppfært: 14. nóvember 2026