MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Íþróttir

KA með góðan árangur á JRB International

Eftir Ingólfur Stefánsson·
jrbint26
kaffid.is

Keppendur frá Júdódeild KA tóku þátt í alþjóðlega mótinu JRB International sem Júdófélag Reykjanesbæjar hélt í Reykjanesbæ dagana 25. og 26. október. Keppt var sunnudaginn 25. október og mánudaginn 26. október fóru fram æfingabúðir fyrir U15. Greint er frá á vef KA.

Fjórir keppendur frá KA kepptu á mótinu og unnu allir til verðlauna.

Úrslit KA-keppenda:

  • Maria Grazyna Wasowicz – 1. sæti í U15 -52 kg
  • Vladyslava Ryzhkova – 1. sæti í U15 +70 kg og 2. sæti í opnum flokki
  • Dagmar Steinþórsdóttir – 3. sæti í U15 +70 kg
  • Jóhanna Heiðrún Ágústsdóttir – 3. sæti í U15 -44 kg

Dagmar og Vladyslava kepptu báðar einum flokki ofar en þeim bar.

„Eirini Fytrou, yfirþjálfari Júdódeildar KA, fylgdi hópnum á mótið. Við óskum keppendum til hamingju með árangurinn,“ segir á vef KA.

Tengdar greinar

Uppfært: 10. nóvember 2026