Knattspyrnudeild KA hefur selt Ívar Örn Árnason til Breiðabliks. Ívar Örn sem er uppalinn hjá KA hefur verið fyrirliði KA undanfarin ár og sýnt sig sem einn besti miðvörður Bestu deildarinnar. Þetta segir í tilkynningu á vef KA í dag.
Ívar greinir einnig frá félagsskiptunum á samfélagsmiðlum sínum í dag þar sem hann segir að nú ljúki stórum kafla í hans lífi.
„Ég er ótrúlega þakklátur öllum þjálfurum, samherjum, starfsfólki og stuðningsmönnum sem hafa stutt mig í gegnum árin. Það hefur verið heiður að klæðast KA treyjunni. Nú tekur nýtt ævintýri við hjá Breiðabliki en KA verður alltaf heimilið mitt og stór hluti af hjartanu mínu,“ skrifar Ívar.
Ívar Örn er fæddur 1996. Hann lék sína fyrstu leiki með meistaraflokksliði KA sumarið 2015 og samtals hefur hann leikið 181 keppnisleik fyrir KA í deild, bikar, evrópu og meistarakeppni KSÍ. Hann var í liði KA sem vann sigur í Inkassodeildinni sumarið 2016 sem tryggði félaginu sæti í deild þeirra bestu þar sem liðið hefur leikið allar götur síðan auk þess að vera fyrirliði KA sem varð Bikarmeistari 2024. Þá var faðir hans, Árni Freysteinsson, leikmaður í Íslandsmeistaraliði KA sumarið 1989.
„Við óskum Ívari góðs gengis í Kópavoginum og þökkum honum fyrir magnað framlag til félagsins,“ segir í tilkynningu KA.


COMMENTS