KA slítur samstarfi við Þór

Knattspyrnudeild KA á Akureyri hefur ákveðið að endurnýja ekki samsstarfssamning við Þór um rekstur kvennaknattspyrnu á Akureyri. Samsstarfssamningur félaganna um að standa saman að rekstri 3. flokki, 2.flokki og meistaraflokki kvenna rann út 15. október síðastliðinn.
„Að baki ákvörðuninni liggur sú framtíðarsýn KA að kvennaknattspyrna verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur sem hefja æfingar hjá KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk,“ segir í tilkynningu KA.
Frá og með næsta tímabili mun KA tefla fram eigin liðum í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna.
„Félagið lítur björtum augum til þessa nýja kafla og hlakkar til að byggja upp öflugt, faglegt og skemmtilegt kvennastarf sem KA-fólk getur verið stolt af. KA þakkar Þór fyrir gott og gifturíkt samstarf í gegnum tíðina og óskar félaginu alls hins besta,“ segir í tilkynningunni.
Tengdar greinar
Uppfært: 2. nóvember 2026










